|
Könnun
Var ekki alveg komin tími á blogg
Jú fyrir meira en ári síðan
0 atkvæði
Júts mikið var að beljan bar
5 atkvæði
Ertu að grínast, ertu byrjuð aftur, trúi því ekki fyrr en þú bloggar aftur
1 atkvæði
Alveg mátulega passlegur tími hjá þér
0 atkvæði
Fjöldi atkvæða: 6
Síðast inni
Ég var síðast inni þann 8 október
|
08.10.2008 12:09:23 / Líftæknihjúkkan
 Algjör snilld þessi mynd en ég er að verða búin að gera smá í BS verkefninu og nú ætla ég að senda það og sjá svo hvort að ég þurfi að gera þetta allt aftur
»
01.10.2008 08:50:13 / Líftæknihjúkkan
þið uppgötvuðuð snjóinn í fyrsta skipti???? Kannski ekki en þið munið í það minnsta eftirvæntinguna þegar þið lituð út um gluggann og það var smá föl á jörðinni. Ég get í það minnsta sagt að Dýrafjörðurinn er ansi fallegur á að líta í dag. Örlítil hvít föl liggur yfir öllu og rólegt og still veður. Sigríður og Jóhann áttu ekki orð í morgun yfir þessu hvíta dóti. Svipurinn sem fylgdi orðinu snjór var ekki að sýna neinn skilning á því hvað þetta var en það varð samt að prófa að hlaupa í þessu, smakka á þessu, finna hvað þetta er kalt og bara að fylgjast með þessu liðast niður úr loftinu......bara yndislegt
Ljúf stund í morgun í það minnsta þegar við fylgdumst að í leikskólann og könnuðum snjóinn.......
Fór í gær í síðustu útihreyfinguna hjá Drekanum og OMG, það var sko púl. Held að það hafi verið Xtra púl þar sem drekinn var afmælisbarn. Í það minnsta var öllum hér heima bannað að missa nokkuð í gólfið því það var ansi erfitt að beygja sig í gær eftir tímann og aldrei fyrr hef ég eins mikið saknað þess að hér á bæ er ekki BAÐKAR.......lét mér nægja að taka Recovery sheik ala Gratton og tang kuei með. Og er bara ótrúlega góð í dag.
Allavega þá er ég búin að afreka að prenta fjármálaglærurnar og nú á ég bara eftir að lesa þær og reikna nokkur dæmi. Kökusneið er það ekki en er að spá í að skella mér í laugina og synda í 30 mín......
Knús og kossar
»
25.09.2008 09:59:36 / Líftæknihjúkkan
Drekaklukk, en drekinn klukkaði mig svo ég er'ann. Fjögur störf sem ég hef unnið um ævina o Sjoppan o Sundlaugin 0 Mjólkurbúðin o Bakteríuteljari Fjórar bíómyndir sem ég held upp á o The Secret o 10 things I hate about you o Narnia o James Bond, Lethal Weapon og Die Hard Fjórir staðir sem ég hef búið á (ætti kannski að nefna staði sem ég hef EKKI búið á) o Þingeyri o Ísafjörður o Bifröst o Reykjavík
Fjórir sjónvarpsþættir sem mér líkar o Despó o House o Heroes o CSI Fjórir staðir sem ég hef heimsótt í fríum o Króatía o Kúba o Feneyjar o Spánn Fjórar síður sem ég skoða daglega fyrir utan blogg o bb.is o mbl.is o unak.is o myherbalife.com Fjórar bækur sem ég hef lesið oft o Kennslubækur í matreiðslu J o Tómar stílabækur, því ég nenni ekki að glósa o dagbókin með fína skipulaginu sem ég fer ekki eftir o handbók í krakkablaki Fjórir bloggarar sem ég klukka o Gúan o Svipan o Íþróttaálfurinn og co o Helena fagra KNús og kyss
»
18.09.2008 13:37:19 / Líftæknihjúkkan
ja eða leifarnar af honum komu við í Aðalstrætinu og bönkuðu á afturrúðuna á bílnum mínum og BRUTU hana.....alveg sérdeilis skemmtilegt, þannig að RAVinn er bara geymdur hjá afa Bjarna í Bjarnaborginni þar til hann fær tíma í rúðuísetningu.
Ég er á leið í Sódómu og finnst það hálfskrítið þar sem að ég fer bara ein. Bellan mín ætlar að hugsa um ungana mína fyrir mig þannig að eg verð bara ein að dandalast.
Mér finnst ég ekkert vera komin af stað í lærdómnum enda ætla ég ekki að tjá mig meira um það í bili, er bara þunglynd þegar ég hugsa um læridót í öjeblikið. Krakkablakið er komið aftur af stað og 10 börn mættu í yngri hóp og 16 stk í eldri hóp og þvílíkt stuð. Ég sé fram á hérna topp blakara í vor og hörku strandblaksmót.
Ef þið eruð í borginni um helgina, endilega bjallið, kannski er tími í kaffibolla
Knús
»
10.09.2008 11:48:43 / Líftæknihjúkkan
og aftur veðurfréttir en ég sit hér við lærigluggann minn og horfi yfir sjóinn sem er SPEGILsléttur. ÉG horfi út um gluggann því að augun ná bara ekki að halda sér á bókinni. Eða hugurinn við hana.... Las samt alveg helling í bókinni í gær, var mjög dugleg að lesa og hélt að ég gæti verið áfram dugleg í dag.....en nei Held að þetta sé náttfötunum að kenna.....fékk nefnilega Belluna í heimsókn í MORGUN og hún þurfti bara einhvern til að hlusta á sig, og setja í þurrkarann hjá mér. Við fengum okkur breakfast of champions, eða réttara sagt, súkkunana hristing og aloe vera djús með því. Og svo til að toppa þetta rjúkandi heitt kaffitár. Ég er búin að vera dugleg að mæta í drekapúlið og ekki laust við að segja að ég er að FÍLA þetta flott, er allavega farin að geta hlaupið þokkalega og bætti mig um ca 200 metra í 12 mín hlaupinu á milli vikna, þannig að markmiðið fyrir næsta mán er að komast 200 mtr í viðbót. Hér eru svo allir að verða nánast lausir við bleyju, nema á nóttunni þá fá strumparnir bleyju, ætla ekki að taka það af fyrr en hún er nánast þurr um morguninn, bleyjan sko. Annars allir hressir og sakna pabba síns mikið. Það er þráspurt á kvöldin þegar við erum að fara að sofa "mamma, hvar er pabbi minn" og það er endurtekið aftur og aftur og aftur, alveg sama hvað ég segi oft að hann sé í Reykjavík. En jæja ætla að snúa mér að námsbókinni,en fyrst, klæða mig....
»
29.08.2008 08:24:52 / Líftæknihjúkkan
en ég er samt búin að tryggja það að trampólínið fari ekki neitt, það er kirfilega bundið við girðinguna mína. Ég að minnsta kosti eyddi kvöldinu í gær í það að tína saman allt lauslegt í garðinum og strípa trampólínið og binda það svo við girðinguna......ég gerði þetta nú ekki alveg sjálf því hann pápi minn elskulegur kom og hjálpaði mér en hann skutlaðist hérna yfir með kassa fyrir ömmu undir berin og skipti um leið um sílindra (ekki hugmynd hvernig á að skrifa þetta) ámiðhæðinni hjá mér. Því nú líður brátt að því að hér á miðhæð verði fullt hús af unglingum 3 kvöldí viku. Vona bara að það verði ekki alveg Sjallafílingurinn all over again en ég slepp þá í það minnsta við áfengið á tröppunum.....
Ég er búin að vera að garfa í því síðustu daga að sækja um au pair, og vona að það geti verið komið í gang um áramót en þar sem að ég hef aldrei gert svona áður þá veit ég ekkert hvernig þetta gengur fyrir sig en þetta hlýtur að koma
Læt þetta duga í bili, er bara sybbin og langar mest að skríða aftur upp í rúm
»
27.08.2008 22:18:34 / Líftæknihjúkkan
Þú veist að það er 2008 ef.....
1. Þú ferð í Party og byrjar að taka myndir fyrir bloggið þitt.
2. Þú hefur ekki spilað kapal með alvöru spilastokk í nokkur ár.
3. Ástæðan fyrir því að þú ert ekki í sambandi við suma vini þína er af því þeir eru ekki að blogga, ekki á MySpace og eða á Facebook .
4. Þú leitar frekar um alla íbúð af fjarstýringunni í stað þess að ýta bara á takkann á sjónvarpinu.
6. Kvöldstundir þínar snúast um að setjast niður fyrir framan tölvuna.
7. Þú lest þennan lista kinkandi kolli og brosandi.
8. Þú hugsar um hvað það er mikil vitleysa að lesa þennan lista.
9. Þú ert of upptekin/nn að taka eftir númer fimm.
10. Þú virkilega skrollaðir tilbaka til að athuga hvort þar væri númer fimm.
11. Svo hlærðu af heimsku þinni.
12. Sendu þetta á vini þina, settu þetta á bloggið þitt eða komdu þessu á framfæri einhverstaðar EF þú félst fyrir þessu... Aha ekkert svona fyrst að þú féllst fyrir þessu.
Sendu þetta á vini þina, á bloggið þitt eða komdu þessu á framfæri einhverstaðar innan 2 mínútna og 14 sek eða minna og morgundagurinn þinn verður besti dagur sem þú hefur upplifað .. hingað til!
En, ef þú bíður of lengi, mun það ekki skipta neina því hverjum er ekki sama svona lista ... En vinir þínar munu missa af frábæri skemmtun
»
27.08.2008 12:54:09 / Líftæknihjúkkan
Fann þessa færslu því að mig minnti að ég hefði misst mig yfir heimspekinni áður....... En fyrsti HMS tíminn var í dag og ´kjánahrollurinn sem ég fékk var þvílíkur......dí maður en attitudið er annað í dag en fyrir 4 árum. Núna ÆTLA ég að ná þessu og þarf í raun BARA að NÁ þessu prófi, fékk HITT ALLT METIÐ því ég var með svo snilldarháar einkunnir í þeim..... ég er snilli en njótið spekinnar sem ég setti fram fyrir 4 árum í okt 2004 Fimmtudagur og ekkert blogg ennþá......best að bæta úr því svona á síðustu mínútum þessa dags. En dugnaðurinn var alger í dag eða allavega gert stórt effort í þá átt að þykjast vera námsmaður...  ...ég allavega mætti í fræðsluna klukkan 9 í morgun og það var byrjað á vefjafræðinni og svo í framhaldi af því helv. heimspekispurningarnar...(mind the language). Þetta fag er svo gjörsamlega að fara með mig að það er ekki normalt.....Þetta fag er svo gjörsamlega hannað til að rugla í hausnum á manni fram og aftur að ég er farin að halda að maður sé algjört airhead hérna,  sem ég svo veit að ég er ekki en halló....afhverju finnst mér þetta þá ekki meika sens....er ég þá barasta svona yfir þetta rugl hafin eða hvað......good question hérna, alveg að kafa hérna inn í mitt sjálf eða þannig....bara hérna tvær sögur!!! 3.Járnbrautarvagninn. Maður stendur á járnbrautarpalli og bíður eftir lest. Fyrir framan pallinn eru tvö aðgreind lestarspor sem ná eins langt í sitt hvora áttina og augað eygir. Hann sér í fjarska að fimm verkamenn eru að bardúsa eitthvað á öðru sporinu og einn verkamaður á hinu. Skyndilega uppgötvar söguhetjan sér til skelfingar að mannlaus járnbrautarvagn kemur rennandi eftir því sporinu sem fimm eru að vinna á, og stefnir beint á þá. Hún eygir enga von um að verkamennirnir taki eftir vagninum fyrr en hann hefur skollið á þeim og kramið til dauða, né er hún nógu nálægt til að geta hrópað varnaðarorð til þeirra. Söguhetjan vann hins vegar eitt sinn á járnbrautarstöðinni og veit þar af neyðarhandfangi sem hún getur gripið í til að beina vagni milli spora. Rétt áður en vagninn nær til verkamannanna fimm seilist hún í handfangið og beinir honum á hitt sporið þar sem einn verður fyrir vagninum og lætur lífið. Hinir fimm sleppa óskaddaðir. 4.Fituhlunkurinn.Enn bíður maður á járnbrautarstöð. Í þetta sinn er aðeins eitt spor sjáanlegt og í fjarska má greina fimm verkamenn sitja klofvega á því. Stjórnlaus vagn kemur rennandi eins og áður og stefnir á fimmmenningana en nú er ekkert handfang til að grípa í. Hins vegar veit söguhetjan, sem er verkfræðimenntuð, að skylli vagninn á nógu þungum hlut myndi hann örugglega stöðvast áður en hann næði til verkamannanna. Söguhetjan hugleiðir að stökkva sjálf fyrir vagninn en áttar sig um leið á að hún er ekki nógu þung til að hægja á ferð hans. Það er þó lán í óláni að við hliðina á henni á pallinum stendur akfeitur farþegi sem einnig er að bíða eftir lest; hann er í mestu makindum að lesa dagblað og háma í sig ostborgara. Söguhetjan gerir sér hægt um hönd, hrindir fituhlunknum út á sporið – og beint í flasið á vagninum sem stöðvast samstundis. Fimmmenningarnir bjargast. Hmm spurningin hér er hvað mynduð þið gera í sporum söguhetjunnar okkar...sem að augljóslega drepur fólk með aðgerðum sínum hvort sem þær felast í að gera ekkert eða gera eitthvað.. .
Jamm þegar kennarinn fór yfir þetta AFTUR í dag þá var ekki laust við að ég flygi út úr stofunni því að kjánahrollurinn var svo mikill. Verð að segja samt að ég var örlitlu nær núna en síðast....þannig að kannske verður þetta í key
Kolla mín, innilegar þakkir fyrir innlitið, nú verður þetta eins og síðast, OMG hvað éger búin að skemmta mér yfir að lesa kommentin sem gengu hér fyrir 4 árum síðan....hlakka til vetrarins....
Líftæknihjúkkan út í bili
»
25.08.2008 20:38:47 / Líftæknihjúkkan
er maður nú mættur aftur í bloggheima en það er langt síðan þetta gerðist að ég hreinlega settist hérna og ákvað að nú væri kominn tími á blogg. ´´EG held að þetta tengist skólanum eitthvað, þá er maður svo mikið fyrir framan tölvuna og hefur "tíma" til að blogga eða bulla því að það er eiginlega meira spennandi en að lesa. OK kannski kominn smá tími á updeit, en málið er að nú´í haust ákvað ég að hefja aftur nám í hjúkrun, jább og í þetta skipti ÆTLA ég að ná heimspekinni.....ég ætla líka að byrja að skrifa BS verkefnið í líftækninni og valdi mér slíkt í dag, segi ykkur kannski meira frá því þegar að ég veit meira um það sjálf en það hljómaði spennandi í dag og verður vonandi ekki alltof flókið í framkvæmd. Læt þetta duga í dagsvo ég geti kannski sagt eitthvað meira næst, anyhú þá er ég byrjuð aftur....
adios í bili Líftæknihjúkkan
»
09.05.2007 12:38:53 / Líftæknihjúkkan
Sko hann segir mér að hingað inn hafi kíkt 27 í dag.....já
einmitt og hver nennir að kíkja hingað inn til að lesa gamlar
fréttir síðan í apríl.......
Ekki ég, ég lét nú samt tilleiðast og kíkti og sá að það var
þörf á uppfærslu...spurning um að redda þeim málum
Hef nú voða lítið að segja, nema ég fer á Ísó á eftir að hitta
hana Esther vink0nu en hún náði sér í svo svæsna flensu að mér
finnst tími til komin að hitta á hana og dekra hana aðeins svona í
batanum.
Útihlaup í dag og það verður sko ekkert jafnsléttupisofkeik
hlaup ég er viss um það, það er sko ekkert skafið af því hjá
svipunni þessa dagana þó svo að rúmlega helmingur áhangendahópsins
sé í felum heima og nennir ekki út að leika, þá fáum við hinar sem
leggjum í að mæta allt fyrir peninginn....ég er nú reyndar búin að
vera dugleg að fela mig, en hef í staðinn hlaupið á brettinum og
síðasta afrek var á mánudaginn en þá synti ég 1,2 km á
hálftímanum. Ansi gott hjá mér
Hlakka annars bara til í dag að mæta og gera eitthvað gáfulegt
við skinkuna. Svo er hinn margumfrægi heilsuklúbbur í kvöld
og satt að segja þá kemur alltaf minna og minna af gellunum í viku
hverri, alla vega fjúka svoleiðis af þeim sentimetrarnir að ég fer
að hætta að sjá þær þegar þær banka, þær verða orðnar svo
skinny
jæja bull um ekkert er orðið fínt í dag
»
03.04.2007 08:49:30 / Líftæknihjúkkan
Já það er spurning hvort að svipan fái barningsleyfið......
Þar sem síðasta færsla snerist að miklu leyti um veðrið þá gerir
þessi það bara líka. Nei smá djók en mér finnst æði að vakna
á vorin. Fíla það í botn að heyra í fuglunum tísta úti, maður
vaknar eitthvað svo rólegur og vel sofinn. Allavega ég og
Sigríður þessa dagana, Jóhann er stundum ferlega úrillur og Birta
sefur alveg fram undir kl 10.
Nú á ég sem sagt að vera að koma lagi á skólabækurnar og reyna
að lesa eitthvað í þeim en eitthvað gengur það hægt að finna
þær. Alveg ótrúlegt hvað ég hef lítinn áhuga á þeim
skruddum.
Í sjónvarpinu þessa dagana hef ég tekið eftir auglýsingu, en
málið er að það er verið að auglýsa tónleika með JOsh Groban og ég
er orðin svo pirruð á þessari auglýsingu. Afhverju, jú MIG
LANGAR svo að fara á tónleikana en sé ekki glætu á að geta farið og
mér finnast þessa blessuðu auglýsingar bara vera núa salti í
sárin. Þannig að það eina sem ég get gert er að setja Josh
Groban á fóninn/geislann heima og þykjast vera á tónleikum....
Látum þetta duga úr fuglasöngnum á eyrinni fögru og förum að spá
í að taka þátt í þrekmeistaranum
»
22.03.2007 10:30:17 / Líftæknihjúkkan
Ekki nærri því eins langt síðan síðast....mér fer fram..
Nú ætla ég að byrja á því að kvarta undan veðrinu, ekki
það að mér finnist veðrið neitt slæmt, það er bara það að Torfi
minn er VEÐURTEPPTUR í Reykjavík og ég vil fá hann heim, þessvegna
þessa stundina er ég pirruð yfir veðrinu. Nóg um það samt
Í gær var hreyfing, ég mætti auðvitað hress og kát í spriklið
hjá Drekanum og SVipunni, verð samt að segja að bit svipunnar var
ekki fast þennan daginn og Drekinn var eitthvað ekki on fire en ég
fyrirgef þeim það alveg og býst við HÖRKUTÍMA í dag, svona í takt
við magavinnutímann sem var fyrir nokkru.
Ég er náttúrlega svo ánægð með hreyfinguna því að með
hreyfingunni er ég að gleypa HERBALIFE á fullu og saman eru þetta
bara ein mesta snilld sem ég hef gert um ævina, notum
vaffið. Ég hef sem sagt ekkert verið að tapa kílóunum mínum í
gríð og erg en hef misst fullt af sentimetrum og er orkumeiri
og finnst ég vera í fantaformi....þó svo að spóaleggirnir mínir séu
ekki eins sterkir ennþá, vil endilega bæta það
SVo mætti ég á aðalfund Höfrungs á þriðjudagskvöldið og var
þetta flottur fundur að mínu mati, það hefði samt mátt vera
mun betri mæting. Ég bauð mig galvösk fram í stjórn og
fékk kjör til þess en grunaði ekki hvað ætti eftir að bíða
mín. Félagar mínir í stjórn lögðu fram þá tillögu að ég myndi
verða gjaldkeri og það hreyfði enginn við mótmælum, EKKI EINU SINNI
ég.....verð samt að segja að ég hafði frekar augastað á
ritarastarfinu en þetta hlýtur að reddast. Verst er að ég
setti út á reikninga þá sem bornir voru upp og nú kemur
það í minn hlut að fara yfir þá á næsta
aðalfundi....pjúff
Nú hyllir undir gelluhitting í Sódómu en ég var að komast að því
að ég, Kolla og Jóna verðum á sama tíma í borginni, og ég held nú
að kaffihúsin verði könnuð og ekki ólíklegt að einhverjar búðir
verði teknar út, að minnsta kosti þá útstillingarnar í
gluggunum
Læt þetta nægja í bili en lýsi yfir vonbrigðum mínum með
veðrið.....
»
08.03.2007 21:58:32 / Líftæknihjúkkan
að ég var heillengi að reyna að muna lykilorðið,
Hef samt ekki mikið að segja eða eiginlega hef ég helling að
segja veit bara ekki hvar ég á að byrja. Ég er náttúrulega aldrei
að vasast í einhverju einu, heldur alveg grilljón hlutum og sem
betur fer er ég byrjuð að herbalæfast, þannig að minnið er að snúa
aftur af fullum krafti og að ég tali nú ekki um orkuna. Fyrir
nokkru síðan þá var ég orðin sófadýr um átta leytið á kvöldin og
drattaðist svo inn í rúm um miðnætti eftir að hafa horft á
imbann.
Nú sit ég hér og blogga og klukkan er 21:51, ennþá vakandi og í
fullu fjöri. Er aftur byrjuð á bútasaumsnámskeiðinu, eins og
hún Pálína "amma" kallar það en það er sem sagt
átaksnámskeiðið hjá Drekanum og Svipunni og við skulum bara segja
að maður fær sko alveg að taka á því. Enda er ég oft alveg í
tískulitunum, rauður og fjólublár af áreynslu til skiptis,
sérstaklega ef það er spinnin eða hlaup. Það er bara gaman að
þessu
Undanfarna daga hef ég mikið spáð í að fresta lokaverkefninu
mínu um nokkra mánuði en málið er að mér finnst bara vanta upp á
áhugann hjá sjálfri mér. Ég sjálf er í nokkurs konar athugun
á sjálfri mér, hvort ég sé sátt við það sem ég er að gera og hef
gert. Kannski svona meira að gera upp við sjálfa mig síðustu
ár. Til dæmis er ég búin að sinna mér, vinunum, börnunun,
áhugamálunum, manninum mínum eins vel og mér finnst ég eiga að gera
og er ég að gera eitthvað sem ég get verið ánægð með þegar ég lít
til baka. Já ég veit háfleygar pælingar en ég held samt að
þær séu nauðsynlegar svona "vons in að wæl" Maður
fókusar betur á það sem mann langar og á auðveldara með að marka
leiðina. það finnst mér að minnsta kosti.
Ó well kannski er maður bara að þroskast (froskast)
Líftæknihjúkkan sem stefnir á MS í Cellular and molecular
nutrition......
»
20.12.2006 11:15:06 / Líftæknihjúkkan
Eitthvað var nú fámennt en góðmennt í konfektgerðinni og ég verð að
segja fyrir mitt leyti að þetta verður eitthvað endurskipulagt á
næsta ári. Við mættum sem sagt 3 og sú fjórða bættist við
aðeins seinna. Þetta breytir því samt ekki að konfektið er
alltaf jafngott á bragðið og Torfi er eiginlega hálfskúffaður að fá
ekki að stelast í konfektið, en það bíður fram á aðfangadag, það
verður með jólakaffinu. Kannski ég leyfi honum að smakkað það
fyrr ef hann verður góður
Við hjónakornin erum búin að skrá okkur á bútkamp námskeið
(bútasaumsnámskeið) eftir jólin hjá Svipunni og Drekanum (Öldu og
Dóru). Það verður held ég voða sport. 3x í viku og
miðað við hvernig gellurnar líta út eftir fyrra námskeiðið hjá þeim
þá hlakka ég til í sumar....verð sko alveg mega beib.....með mega
beibí á handleggnum....verð samt að segja að ég verð að leggja
mikið á mig, er dáldið löt, þarf að breyta hugarfarinu og hætta
þessu "get ekki" hugarfari og bara smella mér í þetta
Læt þetta nægja, veit ekki hvað ég á að bulla meira,
»
30.11.2006 16:16:12 / Líftæknihjúkkan
Í tilvistarkreppunni sem ég var í morgun þá gleymdi ég alveg að
minnast á jólakonfektsgerðina en ég er að
hugsa um að hafa hana laugardaginn 16 desember.
Og stelpur mínar það sem þið þurfið að hafa með ykkur er
eftirfarandi
- Marsipanrúlla 1 stk,
nema þið viljið vera xtra duglegarog gera dobbelt
- Núggat höfum þau 2-3
stk
- Súkkulaðihjúpur, það
reynast best þessir frá odense, droparnir sko, ljóst eða dökkt bara
það sem ykkur þykir betra
- Flórsykur 1 pk
- Knús fyrir mig, alveg krúsjalt
ingredient
Ég skal sjá um möndlurnar og líkjörinn....hikk
Svo megið þið alveg taka mennina ykkar með svo Torfa leiðist
ekki....og það verður á boðstólnum jólaglögg ala Torfi
Verið í bandi dömur, the more the merrier
»
Síður: 1 2 3 ... 20
|
Dagsetning
23. febrúar 2012
|